KBG 17 AFI

1.200  ISK

HÖNNUÐUR: KRISTÍN BRYNJA

Ég kalla þessa peyslu KBG 17  AFI. Föðurafi minn, afi Arthúr, var Norðmaður. Hann ólst upp í Sandnessjöen í norður Noregi en flutti til Íslands árið 1925. Móðir hans, sendi syni sínum peysu í jólagjöf í kringum 1950. Það var falleg, dökkblá „kofta“ með hefðbundnu norsku mynstri sem hún hafði prjónað handa honum. Ég man eftir að hafa dáðst að þessari vel prjónuðu peysu sem unglingur. Ég man að mér fannst peysan ekki vera með réttu sniði.  Ég ákvað að prjóna peysuna stóra og pokalega eins og þá þótti flottast. Með hjálp ömmu Katrínar endurgerði ég peysuna hans afa, breytti sniðinu, en hélt einkennum hennar. Núna, 40 árum síðar, verður peysan hans afa mér aftur innblástur. Þessi peysa er prjónuð með berustykki eins og hefðbundin íslensk lopapeysa og greinilega má sjá hvaðan mynstrið er ættað, sem sagt frá „koftunni“ hans afa Arthúrs. 

BAND:

Uppskriftin er hönnuð fyrir allar tegundir af einrúm E bandi.

AÐFERÐ

Byrjað er við hálsmálið og peysan er prjónuð út í eitt ofan frá og niður

STÆRÐIR: (XS, S, M) (L, XL, 2XL) (3XL, 4XL, 5XL) 

Yfirvídd: (91, 98, 103) (107, 116, 119) (128, 131, 145) cm
Hálf yfirvídd: (45,5, 49, 51,5) (53,5, 58, 59,5) (64, 65,5, 72,5) cm
Sídd frá handvegi, med stroffi: + / – 42 cm
Ermalengd, stuttar ermar með stroffi: + / – 19 cm
Ermalengd, langar ermar með stroffi: + / – 46 cm

 STUTTERMA PEYSA

Aðallitur A, E 1002: Skólesít: (200, 200, 200) (250, 250, 300) (300, 350, 350) g
Mynsturlitur B, E 1013 Klórít: (50, 50, 50) (50, 100, 100) (100, 150, 150) g.
Mynsturlitur C, E 1016 Jaspís: (50, 50, 50) (50, 50, 50) (50, 50, 50) g.

LANGERMA PEYSA

Aðallitur A, E 1002: Skólesít: (250, 250, 250) (300, 300, 350) (350, 400, 450) g.
Mynsturlitur B, E 1016 Jaspís: (50, 50, 50) (50, 100, 100) (100, 150, 150) g.
Mynsturlitur C, E 1015 Líparít: (50, 50, 50) (50, 50, 50) (50, 50, 50) g.

PRJÓNAR:

Hringprjónar nr. 3, 60 cm langir og nr. 3,5, 40 og 60 cm langir. Sokkaprjónar nr. 3 og 3,5 (eða langir hringprjónar fyrir „Loop knitting“).

#einrumAFI
HÆGT ER AÐ KAUPA UPPSKRIFTINA SEM PDF SKJAL HÉR FYRIR NEÐAN.

NÁNARI UPPLÝSINGAR

ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…

Vantar þig hjálp?

Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com

Örugg viðskipti

einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu

Styðjið við sjálfbærni

Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.

Title

Go to Top