KBG 11 “BOYFRIEND” PEYSAN – PRJÓNAPAKKI
11.865 ISK – 19.754 ISK
HÖNNUÐUR: KRISTIN BRYNJA
Þetta er peysan sem stelpurnar mínar keppast um að hnupla. Peysuna prjónaði ég upphaflega á manninn minn en hann hefur minnst fengið að njóta hennar upp á síð-kastið. Stelpurnar eiga það til að nota peysuna á röngunni, þær veita því hrein-lega ekki athygli hvernig peysan snýr en flýta sér að verða fyrstar til að ná henni.
KBG 11 peysan er því hönnuð með það fyrir augum að hægt er að snúa henni hvort sem er á réttu eða á röngu, þar sem mynsturlykkjur í hliðum, undir ermum og í laskaúrtöku mynda rauf frá réttu en eru upphleyptar frá röngu. Stærðirnar eru frá XS til XL og ættu því bæði kynin að finna þá stærð sem hentar þeim best, hvort sem óskað er eftir að peysan sé aðsniðin eða víð.
BAND
Allar einrúm L tegundir
Á myndunum er peysan prjónuð í lit L 2001 Silfurberg, L 2008 Gabbró og L 2011 Móberg,
XS (S) M (L) XL 350 (400) 450 (500) 550 g L BAND
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 5,5
Sokkaprjónar nr. 5,5
STÆRÐIR XS (S) M (L) XL
Hálf yfirvídd: 48 (50) 52 (54) 56 cm
Sídd frá handvegi, með stroffi:
40 (42) 44 (46) 48 cm
Ermalengd, með stroffi: 44 (46) 48 (50) 52 cm
VELDU LIT FYRIR PEYSUNA ÞÍNA HÉR FYRIR NEÐAN
NÁNARI UPPLÝSINGAR
KBG 11 “BOYFRIEND” PEYSAN – PRJÓNAPAKKIBBOYFRIEND peysan eða KÆRASTA peysan, er peysan sem stelpurnar mínar keppast um að hnupla. Peysuna prjónaði ég upphaflega á manninn minn en hann hefur minnst fengið að njóta hennar upp á síð-kastið. Stelpurnar eiga það til að nota peysuna á röngunni, þær veita því hrein-lega ekki athygli hvernig peysan snýr en flýta sér að verða fyrstar til að ná henni. KBG 11 peysan er því hönnuð með það fyrir augum að hægt er að snúa henni hvort sem er á réttu eða á röngu, þar sem mynsturlykkjur í hliðum, undir ermum og í laskaúrtöku mynda rauf frá réttu en eru upphleyptar frá röngu. Stærðirnar eru frá XS til XL og ættu því bæði kynin að finna þá stærð sem hentar þeim best, hvort sem óskað er eftir að peysan sé aðsniðin eða víð. AÐFERÐPeysan er fyrir bæði kynin. Hægt er að nota hana hvort sem er á „réttu“ eða „röngu“, allt eftir smekk. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Mynstur er prjónað í hliðar á bol, undir ermar og í laskaúrtöku. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn hringprjón og axlastykkið prjónað með laskaúrtöku. Til að ekki sjáist þegar skipt er um dokku er best að gera það við mynsturlykkjur á hliðum á bol, undir ermi eða við úrtöku á axlastykki. |
STÆRÐIR: XS (S) M (L) XLHálf yfirvídd: 48 (50) 52 (54) 56 cm BANDAllar einrúm L tegundir PEYSAN Á MYNDUNUMÁ myndunum er kærasta peysan prjónuð í lit L 2001 Silfurberg, L 2008 Gabbró og L 2011 Móberg, PRJÓNARHringprjónar nr. 5,5 KBG 11 “BOYFRIEND” PEYSAN – PRJÓNAPAKKI
|
ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…
Vantar þig hjálp?
Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com
Örugg viðskipti
einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu
Styðjið við sjálfbærni
Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.