einrúm E BAND

einrúm E+2 bandið er tvinnað úr einbnadi og tveimur þráðum af Mórberja silki en einrúm E+4 bandið er tvinnað úr einbandi og fjórum þráðum af Mórberja silki. Þegar þessir tveir náttúrulegu þræðir, ullin og silkið, eru tvinnaðir saman sameinast jákvæðir eiginleikar beggja þessara þráða. Silkið gefur mattri ullinni fágaðan gljáa svo litir einrúm bandsins eru djúpir og tærir. E bandið er er prjónað á prjónastærð 3 til 4,5. Fer það eftir verkefni og prjónfestu hvers og eins hvaða prjónfesta hentar best hverju sinni.