BOYFRIEND – E GARN GARNPAKKI
8.975 ISK – 16.155 ISK
HÖNNUÐUR: KRISTÍN BRYNJA
BOYFRIEND – E GARNPAKKI. Segðu okkur stærðina og litinn sem þú vilt og við tryggjum að þú sért með rétt magn af garni fyrir E BAND BOYFRIEND uppskriftina sem fylgir ókeypis með garnpakkanum. Það er auðvelt fyrir þig og tryggir lágmarks sóun! E band útgáfan byggir á gömlu góðu Boyfriend peysunni okkar, KBG 11 en þessi útgáfa af uppskriftinni er fyrir E bandið okkar. Eins og KBG 11 peysan er þessi peysa hönnuð með það fyrir augum að hægt sé að nota hana bæði á réttunni og á röngunni. Með því að aðlaga erma sídd og sídd á bol ætti hver sem er að geta fundið stærð við sitt hæfi. Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður og er hálsmálið mótað með styttum umferðum. Laska útaukning er sitthvoru megin við brugðnar lykkjur á réttu sem undirstrika samskeyti bols og erma, eða mynsturlykkjur sem eru brugðnar á réttu og sléttar á röngu. Samskonar brugðnar lykkjur undirstrika líka hliðar bolsins og innanverðar ermar. Þegar skipt er um band er best að gera það við þessar brugðnu lykkjur svo það sjáist ekki, svo skiptingin sjáist ekki.
MÁL: (XS, S, M)(L, XL, 2XL)(3XL, 4XL, 5XL)
Yfirvídd: (88, 92, 96)(100, 106, 114)(122, 132, 142) cm
Hálf yfirvídd: (44, 46, 48)(50, 53, 57)(61, 66, 71) cm
Full lengd: + / – (64, 66, 68)(70, 70, 71)(72, 72, 72) cm
Lengd á bol frá handvegi, með stroffi: + / – (40, 41, 41)(41, 40, 39)(40, 39, 39) cm
Ermalengd, með stroffi: + / – (42, 45, 48)(52, 52, 51)(50, 49, 48) cm
Hæð handvegs að öxl: (24, 25, 26,5)(28,5, 30, 31,5)(32, 33, 33) cm
BAND
Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm E band.
Áætluð band notkun: (250, 250, 300) (300, 350, 400) (400, 450, 450) g
PEYSAN Á MYNDUNUM
Peysan á myndunum er prjónuð í litum E 1002 Skólisít og E 1009 Oplal
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 3,0 mm (40 cm) eða sokkaprjónar nr. 3,0.
Hringprjónar nr. 3,5 mm (60-80 cm) og 40 cm eða sokkaprjónar nr. 3,5.
PRJÓNFESTA
Prjónið slétt prjón á prjóna nr. 3,5
10 cm = 20 L
10 cm = 28 umf
ERFIÐLEIKASTIG
Æfðir
NÁNARI UPPLÝSINGAR
BOYFRIEND – E GARNPAKKI
BOYFRIEND E GARN – GARNPAKKI. Segðu okkur bara stærðina og litinn sem þú vilt og við tryggjum að þú sért með rétt magn af garni fyrir E BAND BOYFRIEND uppskriftina sem fylgir ókeypis með garnpakkanum. Það er auðvelt fyrir þig og tryggir lágmarks sóun! E band útgáfan byggir á gömlu góðu Boyfriend peysunni okkar, KBG 11 en þessi útgáfa af uppskriftinni er fyrir E bandið okkar. Eins og KBG 11 peysan er þessi peysa hönnuð með það fyrir augum að hægt sé að nota hana bæði á réttunni og á röngunni. Með því að aðlaga erma sídd og sídd á bol ætti hver sem er að geta fundið stærð við sitt hæfi.
STÆRÐIR: (XS, S, M)(L, XL, 2XL)(3XL, 4XL, 5XL)
Yfirvídd: (88, 92, 96)(100, 106, 114)(122, 132, 142) cm
Hálf yfirvídd: (44, 46, 48)(50, 53, 57)(61, 66, 71) cm
Full lengd: + / – (64, 66, 68)(70, 70, 71)(72, 72, 72) cm
Lengd á bol frá handvegi, með stroffi: + / – (40, 41, 41)(41, 40, 39)(40, 39, 39) cm
Ermalengd, með stroffi: + / – (42, 45, 48)(52, 52, 51)(50, 49, 48) cm
Hæð handvegs að öxl: (24, 25, 26,5)(28,5, 30, 31,5)(32, 33, 33) cm
BAND
einrúm E band
Stærðir: (XS, S, M)(L, XL, 2XL) 3XL, 4XL, 5XL)
Áætluð band notkun: (250, 250, 300)(300, 350, 350)(400, 400, 450) g
PEYSAN Á MYNDUNUM
Á myndunum er peysan prjónuð í lit E 1002 Skólisít og E 1009 Opal
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 3,0 mm (40 cm) eða sokkaprjónar nr. 3,0.
Hringprjónar nr. 3,5 mm (60-80 cm) og 40 cm eða sokkaprjónar nr. 3,5.
PRJÓNFESTA
Prjónið slétt á prjóna nr. 3,5
10 cm = 20 L
10 cm = 28 umf
AÐFERÐ
Þessi peysa sem er prjónuð í hring, ofanfrá og niður er hönnuð þannig að bæði er hægt að nota hana á réttunni og á röngunni. Hálsmálið er formað með viðsnúnum umferðum. Aukið er út sitt hvoru megin við brugðnar lykkjur sem undirstrika samskeyti á bol og ermum. Brugðnu lykkjurnar undirstrika líka hliðar bolsins og samskeyti á ermum. Þegar skipt er um band er best að gera það við þessar brugðnu lykkjur, svo samskeytin sjáist ekki.
BOYFRIEND – E GARNPAKKI
- Peysan er prjónuð ofanfrá og niður
- Peysan er prjónuð í hring
- Styttar umferðir forma hálsmál (e-German short rows)
- Hægt er að nota peysuna bæði á réttunni og á röngunni.
Vantar þig hjálp?
Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com
Örugg viðskipti
einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu
Styðjið við sjálfbærni
Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.