VALA CARDI – GARNPAKKI
19.800 ISK – 26.400 ISK
HÖNNUN: KRISTÍN BRYNJA
Nýja silkilínan okkar VALA er full af töfum og dulúð. Við nýttum okkur óviðjafnanlega eiginleika silkisins til að endurvarpa birtu sem á það fellur og skapa sjónræn áhrif. Við lékum okkur með mynstur með sléttum og brugðnum lykkjum sem kemur fallega fram þegar ljósið dansar um handprjónaðan flötinn.
STÆRÐIR: XS – M (L – 2XL)
Yfirvídd: 112 (128) cm
Hálf yfirvídd: 56 (64) cm
Lengd, mæld frá hnakka með neðanverðum kanti: +/- 78 (93) cm eða eins og óskað er
Lengd á bol að handvegi með kanti: +/- 50 (61) cm eða eins og óskað er
Handvegur, mælt frá efst á öxl niður að handvegi: 28 (32) cm
Vídd á ermi við jaðar: 48 (55) cm
Faðmur (mældur þversum frá jaðri á ermi að jaðri á gagnstæðri ermi): 99 (115) cm
Mál eru eftir þvott.
GARN
einrúm PURE silki
Áætluð garnnotkun: 300 (400) g + 50 g fyrir belti, ef til vill í öðrum lit.
JAKKAPEYSAN Á MYNDUNUM
Jakkapeysan á myndunum er prjónuð í lit 4033 Plóma (plum) og beltið er prjónað í litnum Orange
PRJÓNAR
Tveir hringprjónar nr. 3, (80 cm eða lengri) – auka hringprjónninn er notaður
þegar ermarnar eru prjónaðar saman og þegar kanturinn er prjónaður á jakkapeysuna.
Ef til vill hringprjónn nr. 3 (40 cm) fyrir kant á ermum.
Athugið að prjónastærð er til viðmiðunar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
VALA CARDI
Nýja silkilínan okkar VALA er full af töfum og dulúð. Við nýttum okkur óviðjafnanlega eiginleika silkisins til að endurvarpa birtu sem á það fellur og skapa sjónræn áhrif. Við lékum okkur með mynstur með sléttum og brugðnum lykkjum sem kemur fallega fram þegar ljósið dansar um handprjónaðan flötinn.
STÆRÐIR: XS-M (L-2XL)
Yfirvídd: 112 (128) cm
Hálf yfirvídd: 56 (64) cm
Lengd, mæld frá hnakka með neðanverðum kanti: +/- 78 (93) cm eða eins og óskað er
Lengd á bol að handvegi með kanti: +/- 50 (61) cm eða eins og óskað er
Handvegur, mælt frá efst á öxl niður að handvegi: 28 (32) cm
Vídd á ermi við jaðar: 48 (55) cm
Faðmur (mældur þversum frá jaðri á ermi að jaðri á gagnstæðri ermi): 99 (115) cm
Mál eru eftir þvott.
GARN
einrúm PURE silki
Áætluð garnnotkun: 300 (400) g + 50 g fyrir belti, ef til vill í öðrum lit.
JAKKAPEYSAN Á MYNDUNUM
Jakkapeysan á myndunum er prjónuð í lit 4033 Plóma (plum) og beltið er prjónað í litnum Orange
PRJÓNAR
Tveir hringprjónar nr. 3, (80 cm eða lengri) – auka hringprjónninn er notaður
þegar ermarnar eru prjónaðar saman og þegar kanturinn er prjónaður á jakkapeysuna.
Ef til vill hringprjónn nr. 3 (40 cm) fyrir kant á ermum.
Athugið að prjónastærð er til viðmiðunar.
ANNAÐ
Hjálparband eða nælur til að geyma á lykkjur. Prjónamerki
PRJÓNFESTA
Í upphleyptu mynstri á prjóna nr. 3
10 cm = 25 L
10 cm = 38 umf
Prjónfestan er mæld eftir þvott. Athugið að silkið stækkar um u.þ.b. 10% bæði á lengd og breidd við þvott. Prjónlesið virðist því minna þegar það er á prjónunum en það raunverulega er.
AÐFERÐ
Jakkapeysan er prjónuð ofanfrá og niður með einföldu upphleyptu mynstri sem myndast af sléttum og brugðnum lykkjum.
Prjónað er fram og tilbaka. Ermar eru prjónaðar út í eitt út frá bol niður að handvegi. Á loka umferðum eru prjónaðar styttar umferðir til að forma ermarnar.
Lykkjur fyrir hægra framstykki og ermi eru prjónaðar upp frá uppfit á bakstykki og ermi. Prjónað er niður að handvegi og á sama tíma er aukið út meðfram jaðrinum fyrir V-hálsmáli. Á loka umferðum ermar eru prjónaðar styttar umferðir til að forma ermina áður en fram- og bakhlið ermar eru prjónaðar saman frá röngu.
Eftir að útaukningum við jaðrana er lokið er prjónað beint niður. Að lokum er i-cord-kantur prjónaður við jaðra, allan hringinn og við ermar. Prjónið ef til vill belti til að loka jakkapeysunni.
VALA JAKKAPEYSA
- Jakkapeysan er prjónuð ofan frá og niður
- Ermar eru prjónaðar út í eitt.
- Jakkapeysan er létt, mjúk og þægileg.
Vantar þig hjálp?
Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com
Örugg viðskipti
einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu
Styðjið við sjálfbærni
Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.