BANDIÐ OKKAR

Bandið okkar er engu líkt, hannað og þróað af Kristínu Brynju, stofnanda einrúm.
Hér að neðan má finna frekari upplýsingar um bandið þar sem þú getur auðveldlega borið saman mismunandi gerðir bandsins.

EFNI

PURE silki unnið úr fyrsta flokks Mórberja silki. PURE silki er handspunnið og handlitað fyrir einrúm á Indlandi.

LENGD

PURE silki: 50 g hespa inniheldur ca 250 m.

PRJÓNAR

Prjónar nr. 3 er uppáhalds prjónastærðin okkar fyrir PURE silkið.

PRJÓNFESTA

Þegar notaðir eru prjónar nr. 3 verður prjónfestan um það bil 25 L á 10 cm

ÞVOTTALEIÐBEININGAR

Geymið bandið í lokuðum umbúðum ef þess er kostur. Handþvoið flíkina í volgu vatni. Vindið ef til vill í þvottavél á stuttu prógrammi. Leggið flíkina flatt til þerris á þurrt handklæði.  flatt til þerris. 

PURE silki bandið var sett á markað í júlí 2022.

EFNI

LAMB 2 bandið tvinnað úr fyrsta flokks Merinó Lambsull og Mórberja silki. LAMB 2 bandið er hannað af einrúm og framleitt fyrir einrúm hjá Henrichsen’s Uldspinderi í Danmörku

LENGD

LAMB 2: 100 g hespa inniheldur ca 533 m. Hægt er að skipta hespunni upp í tvær 50 g hespur.

PRJÓNAR

Prjónar nr. 3 er uppáhalds prjónastærðin okkar fyrir LAMB bandið.

PRJÓNFESTA

Þegar notaðir eru prjónar nr. 3 verður prjónfestan um það bil 25 L á 10 cm

ÞVOTTALEIÐBEININGAR

Geymið bandið í lokuðum umbúðum ef þess er kostur. Handþvoið flíkina í volgu vatni. Vindið ef til vill í þvottavél á stuttu prógrammi. Leggið flíkina flatt til þerris á þurrt handklæði.  flatt til þerris. 

LAMB 2 bandið var sett á markað í september 2021.

EFNI

E+2 bandið er tvinnað úr íslenskri ull (Einbandi) og tveimur þráðum af Mórberja silki en einrúm E+4 bandið er tvinnað úr íslenskri upp (Einbandi) og fjórum þráðum af Mórberja silki. E bandið þróað og hannað af einrúm. Ístex framleiðir E bandið fyrir einrúm.

LENGD

E+2: 50 g dokkur innihalda um það bil 208 m af bandi.
E+4: 50 g dokkur innihalda um það bil 179 m af bandi.

PRJÓNAR

Prjónar nr. 3,5 er uppáhalds prjónastærðin okkar fyrir E bandið.

PRJÓNFESTA

Þegar notaðir eru prjónar nr. 3,5  verður prjónfestan um það bil 20 L á 10 cm

ÞVOTTALEIÐBEININGAR

Geymið bandið í lokuðum umbúðum ef þess er kostur. Handþvoið flíkina í volgu vatni. Vindið ef til vill í þvottavél á stuttu prógrammi. Leggið flíkina flatt til þerris á þurrt handklæði.  flatt til þerris. 

E bandið var sett á markað í ágúst 2017.

EFNI

L+2 bandið er tvinnað úr íslenskri ull (Léttlopa) og tveimur þráðum af Mórberja silki en einrúm L+4 bandið er tvinnað úr íslenskri upp (Léttlopa) og fjórum þráðum af Mórberja silki. L bandið þróað og hannað af einrúm. Ístex framleiðir L bandið fyrir einrúm.

LENGD

L+2: 50 g dokkur innihalda um það bil 93 m af bandi.
L+4: 50 g dokkur innihalda um það bil 86 m af bandi.

PRJÓNAR

Prjónar nr. 5 er uppáhalds prjónastærðin okkar fyrir L bandið.

PRJÓNFESTA

Þegar notaðir eru prjónar nr. 5  verður prjónfestan um það bil 15 L á 10 cm

ÞVOTTALEIÐBEININGAR

Geymið bandið í lokuðum umbúðum ef þess er kostur. Handþvoið flíkina í volgu vatni. Vindið ef til vill í þvottavél á stuttu prógrammi. Leggið flíkina flatt til þerris á þurrt handklæði.  flatt til þerris. 

L bandið var sett á markað í ágúst 2017.