FAÐMUR SLÁ

1.200  ISK

HÖNNUÐUR: KRISTÍN BRYNJA
STÆRÐIR: EIN STÆRÐ
MÁL

Breidd, til viðmiðunar: 65 cm
Lengd, til viðmiðunar: 65 cm (saman brotið)

GARN

Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm LAMB 2 garn.
Áætluð garn notkun: 250 g  LAMB 2 garn

SLÁIN Á MYNDUNUM

Sláin á myndunum er prjónuð í lit 3030 ASKE.

PRJÓNAR:

Hringpjrónn nr 3, 60 cm langur

PRJÓNFESTA

3 mynstur endurtekningar á breidd = 10 cm
1 mynstur endurtekning á hæð = 7 cm

ERFIÐLEIKASTIG

Reyndir

Þú hleður uppskriftinni niður frá hlekk sem þú færð sendan á netfangið þitt.

NÁNARI UPPLÝSINGAR

FAÐMUR SLÁ

Ég kalla þessa uppskrift EMBRACE PONCHO eða FAÐMUR SLÁ á íslensku.
Slánni er lokað með smellum á annarri öxlinni. Hægt er að snúa slánni þannig að smellurnar eru að framen eða þær eru notaðar til búa til hettu. 

Þessi uppskrift er byggð á FAÐMUR sjalinu. Í ensku orðabókinni fann ég þessa skýringu á orðinu embrace.

Mér fannst hún eiga vel við og ég læt hana því fylgja með hér. EMBRACE: “To hold someone tightly with both arms to express love, liking, or sympathy, or when greeting or leaving someone” (Cambridge English Dictionary).

STÆRÐIR: Ein stærð
MÁL

Breidd, til viðmiðunar: 65 cm
Lengd, til viðmiðunar: 65 cm (saman brotið)

GARN

Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm LAMB 2 garn.

SJALIÐ Á MYNDUNUM

Sjalið á myndunum er prjónað í lit 3030 Aske.

PRJÓNAR

Hringprónn nr. 3, 60 cm langir.

AÐFERÐ

Sláin er prjónuð sem renningur sem síðan er brotinn saman á miðju svo úr verði ferningur.

Smellur sem loka slánni eru festar á aðra hliðina, nokkrum cm frábroti. Hálsmálið er þar sem ekki eru smellur. Renningurinn er prjónaður fram og tilbaka, með gatamynstri í miðju, perluprjóni á jöðrum.

Á báðum endum er stroff mynstur. Til að perluprjón kiprist ekki við stroffmynstur eru prjónaðar styttar umferðir í fyrstu og síðustu umferð við jaðra perluprjónsins.

Notuð er aðferðin German Short Rows, stytt sem ST umf. Þegar skipta þarf um band er gott að gera það í samskeytum gatamynsturs og perluprjóns til að auðvelda frágang.

FAÐMUR SLÁ

  • Sláin er prjónað fram og tilbaka.
  • Skemmtilegt gatamynstur
  • Það fara aðeins 250 g af LAMB bandi í slánna.
  • Hægt að nota slánna sem hettu.

ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…

Vantar þig hjálp?

Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com

Örugg viðskipti

einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu

Styðjið við sjálfbærni

Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.

Title

Go to Top