HB 01 PEYSA
900 ISK
HÖNNUÐUR: HALLA BEN
Peysan hennar Höllu er ein af þessum einföldu, látlausu peysum sem maður tekur ástfóstri við. Þetta er flíkin sem hentar vel hvort sem er við hversdagslegt amstur eða hátíðleg tilefni. Fíngerður kaðallinn í úrtökunni undirstrikar fallegt, aðsniðið formið. Ef maður vill hafa peysuna síðari er auðvelt að lengja hana með því að bæta nokkrum sentimetrum við sídd frá handvegi.
BAND
Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm E-band.
Peysan á myndinni er prjónuð í lit E1002 Skólesít
E-band: XS (S) M (L) XL
200 (200) 200 (250) 250 g.
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 4 og nr. 4,5 báðir 80 cm langir. Sokkaprjónar nr. 4 og 4,5.
Hjálparprjónn
STÆRÐIR
XS (S) M (L) XL
Hálf yfirvídd: 41 (44) 47 (50) 53 cm
Sídd frá handvegi: 39 (42) 45 (48) 51 cm
Ermalengd: 47 (47) 48 (50) 51 cm
HÆGT ER AÐ KAUPA UPPSKRIFTINA SEM PDF SKJAL HÉR FYRIR NEÐAN
NÁNARI UPPLÝSINGAR
ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…
Vantar þig hjálp?
Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com
Örugg viðskipti
einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu
Styðjið við sjálfbærni
Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.