HB 01 PEYSA

1.200  ISK

HÖNNUÐUR: HALLA BEN

Peysan hennar Höllu er ein af þessum einföldu, látlausu peysum sem maður tekur ástfóstri við. Þetta er flíkin sem hentar vel hvort sem er við hversdagslegt amstur eða hátíðleg tilefni. Fíngerður kaðallinn í úrtökunni undirstrikar fallegt, aðsniðið formið. Ef maður vill hafa peysuna síðari er auðvelt að lengja hana með því að bæta nokkrum sentimetrum við sídd frá handvegi.

BAND

Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm E-band.
Peysan á myndinni er prjónuð í lit E1002 Skólesít

E-band: XS (S) M (L) XL
200 (200) 200 (250) 250 g.

PRJÓNAR

Hringprjónar nr. 4 og nr. 4,5  báðir 80 cm langir. Sokkaprjónar nr. 4 og 4,5.
Hjálparprjónn

STÆRÐIR

XS (S) M (L) XL
Hálf yfirvídd: 41 (44) 47 (50) 53 cm
Sídd frá handvegi: 39 (42) 45 (48) 51 cm
Ermalengd: 47 (47) 48 (50) 51 cm

HÆGT ER AÐ KAUPA UPPSKRIFTINA SEM PDF SKJAL HÉR FYRIR NEÐAN

NÁNARI UPPLÝSINGAR

ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…

Vantar þig hjálp?

Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com

Örugg viðskipti

einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu

Styðjið við sjálfbærni

Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.

Title

Go to Top