SLAUFU PEYSAN
900 ISK
HÖNNUÐUR: KRISTÍN BRYNJA
STÆRÐIR: (XS, S)(M, L, XL)(2XL, 3XL)
MÁL
Yfirvídd: (86, 92)(98, 104, 112)(122, 132) cm
Hálf yfirvídd, mælt flatt: (43, 46)(49, 52, 56)(61, 66) cm
Lengd á bol, mælt frá uppfit að handvegi: (38, 40)(41, 41, 43)(46, 48) cm
Ermalengd, mælt frá ermastáli að handvegi: (40, 42)(45, 45, 45)(48, 48) cm
BAND
Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm LAMB 2 band.
Áætluð band notkun: (200, 200)(250, 300, 300)(350, 350) g
PEYSAN Á MYNDUNUM
Peysan á myndunum er prjónuð í litum LAMB 3010 SKY og 3241 LYNG
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 2,5 mm og 3,0 mm, 60 cm langir
Sokkaprjónar nr. 3,0 mm eða langur hringprjónn fyrir “magic loop” tækni. Hjálparprjónn nr. 2,5 mm. Saumnál fyrir frágang.
PRJÓNFESTA
Mynstur á framstykki á prjóna nr. 3,0 mm
10 cm = 28 L
10 cm = 34 umf
ERFIÐLEIKASTIG
Reyndir
Þú hleður uppskriftinni niður frá hlekk sem þú færð sendan á netfangið þitt.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
SLAUFU PEYSAN
Skyrta sem ég á var innblásturinn að uppskriftinni sem ég kalla SLAUFU PEYSAN. Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm LAMB 2 band. Einkenni peysunnar er prjónaður borði við hálsmálið og ermastál með tölum sem gerir peysuna mjög fínlega. Þú getur sett flotta hnappa á ermarnar eða búið til þína eigin eins og ég gerði.
AÐFERÐ
Slaufupeysan er prjónuð í hring, neðanfrá og upp með upphleyptum lykkjum á framstykki en sléttu prjóni á bakstykki og ermum. Á framstykki er djúpt hálsmál. Prjónað er fram og tilbaka eftir hálsmál. Ermastálið er prjónað í tvöföldu prjóni með hnappagati. Lykkjur fyrir ermi eru prjónaðar upp frá jaðri ermastáls. Bolur og ermar eru prjónuð saman á einn hringprjón. Berustykkið er prjónað fram og til baka hér eftir.
Úrtökur á berustykki eru hannaðar til að það líti út fyrir að ermarnar séu ísettar. Líning við hálsmál er prjónuð í tvöföldu prjóni með löngu bandi sem hægt er að binda við hálsinn.
STÆRÐIR: (XS, S)(M, L, XL)(2XL, 3XL)
BAND
Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm LAMB 2 band.
Áætluð band notkun: (200, 200)(250, 300, 300)(350, 350) g
PEYSAN Á MYNDUNUM
Peysan á myndunum er prjónuð í litum LAMB 3010 SKY og 3241 LYNG
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 2,5 mm og 3,0 mm, 60 cm langir. Sokkaprjónar nr. 3,0 mm eða langur hringprjónn fyrir “magic loop” tækni. Hjálparprjónn nr. 2,5 mm. Saumnál fyrir frágang.
SLAUFU PEYSAN
- Fáguð og einstök peysa.
- Skemmtilg að prjóna.
- Ermastál með tölum.
- Upphleyptar lykkjur á framstykki.
Vantar þig hjálp?
Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com
Örugg viðskipti
einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu
Styðjið við sjálfbærni
Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.