TURN VEST

1.200  ISK

HÖNNUÐUR: KRISTIN BRYNJA

Af því að mér er alltaf kalt langaði mig í létt og sparilegt ullar vesti sem ekki þyrfit að vera í skyrtu eða bol undir. Ég hannaði KBG 19 TURN VEST þannig að það væri hægt að snúa V-hálsmálinu aftur á bak. Vestið er prjónað á prjóna nr 7 svo efnið verður létt og hálfgagnsætt. Þetta tvennt gerir vestið mjög sparilegt.

STÆRÐIR: XS (S) M (L) XL (2XL)
MÁL

Yfirvídd: 95 (98) 105 (112) 115 (118) cm
Hálf yfirvídd: 47,5 (49) 52,5 (56) 57,5 (59) cm
Sídd frá handvegi, með stroffi: 23 (23) 25 (25) 25 (25) cm

GARN

Allt einrúm E garn

Áætluð garn notkun: 150 (150) 200 (200) 200 (250) g

VESTIÐ Á MYNDUNUM

Á myndunum er vestið prjónað í lit E+4 1006 Pýrít

PRJÓNAR:

Hringprjónar nr. 4,5 mm (60 cm) og nr. 7 mm (60 cm)

PRJÓNAFESTA

Slétt prjón á prjóna nr 7
10 cm = 12 L
10 cm = 15 umf

#einrum_turnvest

NÁNARI UPPLÝSINGAR

TURN VEST

TURN VEST er hannað þannig að hægt er að snúa því bæði með V-hálsmálið að framan og að aftan. Vestið er prjónað á prjóna nr 7 og er því mjög fljótlegt í vinnslu. KBG 19 TURN VEST er sparilegt þegar það er notað yfir topp en er líka fallegt yfir skyrtu eða stuttermabol. Notaðu millumerkin #einrum_turnvest þegar þú deilir vestinu þínu á samfélagsmiðlum. Við hlökkum til að sjá hjá þér. 

AÐFERÐ

Vestið er prjónað í hring neðan frá og upp. Stroffið að neðan, í hálsmálinu og við handveginn er prjónað með tvöföldu E-bandi á prjóna nr. 4.5 mm. Bolurinn er prjónaður úr einföldu E-garni á prjóna nr. 7 mm, þannig að vestið verður létt og laust. Bolurinn er mjög teygjanlegur og er lengd þess vegna gefinn upp í umferðum, og ekki i sentímetrum. Athugið að þegar stroffið við hálsmál og við handveg er prjónað, dregst vestið saman, sjá myndir á síðu 7. Á myndunum er vestið prjónað með ósýnilegu uppfiti (tubular cast on) og ósýnilegri affellingu (tubular cast off).

STÆRÐIR: XS (S) M (L) XL (2XL)
MÁL

Yfirvídd: 95 (98) 105 (112) 115 (118) cm
Hálf yfirvídd: 47,5 (49) 52,5 (56) 57,5 (59) cm
Sídd frá handvegi, með stroffi: 23 (23) 25 (25) 25 (25) cm

GARN

Allar einrúm E tegundir
Áætluð garn notkun: 150 (150) 200 (200) 200 (250) g
Á myndinni er vestið prjónað í lit E+4 1006 Pýrít

PRJÓNAR

Hringprjónar nr. 4,5 mm (60 cm) og nr. 7 mm (60 cm)

TURN VEST
  • Fljótlegt að prjóna
  • Það fara aðeins 3 dokkur (150 g) af E garni í vestið
  • Vestið er getur bæði verið sparilegt og hversdagslegt

ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…

Vantar þig hjálp?

Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com

Örugg viðskipti

einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu

Styðjið við sjálfbærni

Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.

Title

Go to Top