VALA BUXUR

900  ISK

HÖNNUN: KRISTÍN BRYNJA

Nýja silkilínan okkar VALA er full af töfum og dulúð. Við nýttum okkur óviðjafnanlega eiginleika silkisins til að endurvarpa birtu sem á það fellur og skapa sjónræn áhrif. Við lékum okkur með mynstur með sléttum og brugðnum lykkjum sem kemur fallega fram þegar ljósið dansar um handprjónaðan flötinn.

Kaupa uppskriftina á RAVELRY
Við erum búin að taka til rétt magn af PURE silki fyrir VÖLU buxurnar. Kaupa garnpakka HÉR

STÆRÐIR: (XS/S, M/L, XL/2XL)

Mitti, án þess að teygja strenginn: +/- 77 (85) 93 cm
Mjaðmir: + / – (96, 104, 112) cm
Hæð að framan, með streng, að síðustu útaukningu fyrir skref: +/- 25,5 (28) 30,5 cm
Innansaumur, með i-cord-affellingu: +/- 78 cm eða eins og óskað er
Mál eru eftir þvott.

GARN

einrúm PURE silki
Áætluð garnnotkun: 300 (350) 400 g

VALA, BUXURNAR Á MYNDUNUM

Á myndunum eru buxurnar prjónaðar í lit 4002 Ljós grár

NÁNARI UPPLÝSINGAR

VALA BUXUR

Nýja silkilínan okkar VALA er full af töfum og dulúð. Við nýttum okkur óviðjafnanlega eiginleika silkisins til að endurvarpa birtu sem á það fellur og skapa sjónræn áhrif. Við lékum okkur með mynstur með sléttum og brugðnum lykkjum sem kemur fallega fram þegar ljósið dansar um handprjónaðan flötinn.

STÆRÐIR: (XS/S, M/L, XL/2XL)
Mitti, án þess að teygja strenginn:
+/- 77 (85) 93 cm

Mjaðmir:
+ / – (96, 104, 112) cm

Hæð að framan, með streng, að síðustu útaukningu fyrir skref:
+/- 25,5 (28) 30,5 cm

Innansaumur, með i-cord-affellingu: +/- 78 cm eða eins og óskað er
Mál eru eftir þvott.

GARN

einrúm PURE silki
Áætluð garnnotkun: 300 (350) 400  g

BUXURNAR Á MYNDUNUM

Buxurnar á myndunum eru prjónaðar í stæð M/L í lit 4002 Ljós grár.

PRJÓNAR

Hringprjónar nr. 2,5 (60 cm) og nr. 3 (60 cm) Athugið að prjónastærð er til viðmiðunar

ANNAÐ

Hjálparband eða nælur til að geyma á lykkjur
Prjónamerki
3 cm breið teygja fyrir streng. U.þ.b. 3 cm lengri en mittismál

PRJÓNFESTA

Í upphleyptu mynstri á prjóna nr. 3
10 cm = 25 L
10 cm = 38 umf
Prjónfestan er mæld eftir þvott. Athugið að silkið stækkar um u.þ.b. 10% bæði á lengd og breidd við þvott. Prjónlesið virðist því minna þegar það er á prjónunum en það raunverulega er.

AÐFERÐ

Buxurnar eru prjónaðar ofanfrá og niður í upphleyptu mynstri í sléttum og brugðnum lykkjum. Buxurnar eru prjónaðar í tveimur hlutum. sem sem saumaðir eru saman að lokum.

Fyrst er hægri hlið prjónuð, fram og tilbaka með styttum umferðum við strenginn og útaukningum á hliðum við mjaðmir og síðar við klof. Eftir útaukningar við klof er tengt saman í hring. Skálmin er prjónuð í hring. Að lokum er fellt af með i-cord affellingu  þversum á skálmina með innlögðu bandi sem hægt er að þrengja um öklann . Vinstri hlið og skálm er prjónuð á sama hátt en speglað. Stykkin eru saumauð saman. Að lokum eru lykkjur fyrir streng prjónaðar upp frá mitti. Strengurinn er prjónaður í hring, brotinn niður og saumaður fastur utan um teygju

VALA BUXUR

  • Buxurnar eru prjónaðar ofanfrá og niður
  • Buxurnar eru prjónaðar í tveimur stykkjum
  • Stykkin eru saumuð sama að lokum

ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…

Vantar þig hjálp?

Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com

Örugg viðskipti

einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu

Styðjið við sjálfbærni

Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.

Title

Go to Top