VALA KJÓLL

900  ISK

HÖNNUN: KRISTÍN BRYNJA

Nýja silkilínan okkar VALA er full af töfum og dulúð. Við nýttum okkur óviðjafnanlega eiginleika silkisins til að endurvarpa birtu sem á það fellur og skapa sjónræn áhrif. Við lékum okkur með mynstur með sléttum og brugðnum lykkjum sem kemur fallega fram þegar ljósið dansar um handprjónaðan flötinn.

STÆRÐIR: (S, M, L)(XL, 2XL, 3XL)

Yfirvídd: (75, 83, 91)(99, 107, 115) cm
Hálf yfirvídd: (37,5, 41,5, 45,5)(49,5, 53,5, 57,5) cm
Hæð brjóststykkja frá 1. útaukningu að samskeytum að framan:
(11, 12, 12)(13,5, 13,5, 13,5) cm
Lengd frá handvegi: +/- 80 cm eða eins og óskað er.
Mál eru eftir þvott.

GARN

einrúm PURE silki
Áætluð garnnotkun: (200, 250, 250)(300, 300, 350) g

VALA KJÓLLINN Á MYNDUNUM

Á myndunum er kjóllinn prjónaður í lit 4003 Dökk grár

NÁNARI UPPLÝSINGAR

VALA KJÓLL

Nýja silkilínan okkar VALA er full af töfum og dulúð. Við nýttum okkur óviðjafnanlega eiginleika silkisins til að endurvarpa birtu sem á það fellur og skapa sjónræn áhrif. Við lékum okkur með mynstur með sléttum og brugðnum lykkjum sem kemur fallega fram þegar ljósið dansar um handprjónaðan flötinn.

STÆRÐIR: (S, M, L)(XL, 2XL, 3XL)

Yfirvídd: (75, 83, 91)(99, 107, 115) cm
Hálf yfirvídd: (37,5, 41,5, 45,5)(49,5, 53,5, 57,5) cm
Hæð brjóststykkja frá 1. útaukningu að samskeytum að framan: (11, 12, 12)(13,5, 13,5, 13,5) cm
Lengd frá handvegi: +/- 80 cm eða eins og óskað er
Mál eru eftir þvott.

GARN

einrúm PURE silki
Áætluð garnnotkun: (200, 250, 250)(300, 300, 350)  g

KJÓLLINN Á MYNDUNUM

Kjóllin á myndunum eru prjónaður í stæðr M í lit 4003 Dökk grár

PRJÓNAR

Hringprjónn nr. 3 (60-80 cm)
2 sokkaprjónar eða stuttir hringprjónar nr. 3 fyrir i-cord Athugið að prjónastærð er til viðmiðunar.

ANNAÐ

Hjálparband eða nælur til að geyma á lykkjur Prjónamerki

PRJÓNFESTA

Í upphleyptu mynstri á prjóna nr. 3
10 cm = 25 L
10 cm = 38 umf
Prjónfestan er mæld eftir þvott. Athugið að silkið stækkar um u.þ.b. 10% bæði á lengd og breidd við þvott. Prjónlesið virðist því minna þegar það er á prjónunum en það raunverulega er.

AÐFERÐ

Kjóllinn er prjónaður ofanfrá og niður með upphleyptu mynstri í sléttum og brugðnum lykkjum. Byrjað er að prjóna vinstra band og brjóststykki, síðan er hægra band og brjóststykki prjónað. Brjóst- stykkin eru sameinuð á framanverðri miðju og eftir að aukið er út í hliðum er fitjað upp fyrir bakstykki.

Bolur er prjónaður í hring með útaukningum meðfram 2 sléttum lykkjum á hvorri hlið.
Eftir útaukningar er bolnum skipt upp þar sem framstykki og bak- stykki er prjónað hvort fyrir sig. Kantar eru prjónaðir samtímis. Hægt er að binda böndin um hálsinn eða í litla i-cord strimla sem saumaðir eru fastir efst á bakstykki. Einnig er hægt að sauma böndin föst við bakið.

VALA KÓLL
  • Kjóllinn er prjónaður ofanfrá og niður
  • Hægt er að binda böndin um hálsinn eða festa þau við bakið
  • Uppskriftin er í sex stærðum

ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…

  • VALA KJÓLL – GARNPAKKI

    13.200  ISK23.100  ISK

  • VALA TOPPUR

    900  ISK

  • VALA STUTTBUXUR

    900  ISK

Vantar þig hjálp?

Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com

Örugg viðskipti

einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu

Styðjið við sjálfbærni

Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.

Title

Go to Top