BP 02 RENDUR PEYSA

950  ISK

HÖNNUÐUR: BJÖRG PJETURSDÓTTIR
#einrumRENDUR

 

Það var árið 2007 sem Björg Pjetursdóttir hannaði uppskriftir af barnafötum með það fyrir augum að nýta band afganga. Ég varð hugfangin af þessum handgerðu, litríku flíkum. Árið 2016 varð að veruleika sá draumur minn að gefa út uppskriftir Bjargar fyrir einrúm band. Við unnum að því að útfæra uppskriftirnar fyrir bandið og gefa prjónurum vísbendingu um það hvernig hægt er að nota band afganga sína. Við gáfum út bókina RENDUR í mars 2017. Í bókinni eru átta uppskriftir fyrir börn á aldrinum eins til tólf ára. Bókina er hægt að fá á ensku, dönsku og íslensku HÉR.

AÐFERÐ

Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður, hálsmál og axlastykki eru prjónuð á röngu, peysunni er snúið við og bolur og ermar eru prjónuð á réttu. Útaukning er jöfn yfir axlastykkið og sléttar og brugðnar lykkjur mynda mynstur. Í hálsmáli, fremst á ermum og neðst á bol er prjónað stroff. Athugið að fitja laust upp til að hálsmál verði ekki of þröngt.

BAND

Uppskriftin er hönnuð fyrir allar tegundir af einrúm E bandi. Skoðaðu úrvalið af E bandi HÉR. Það er tilvalið að nota einrúm band afganga í þessa RENDUR peysu.

Kaupa þessa uppskrift á RAVELRY

VELDU TUNGUMÁL TIL AÐ KAUPA UPPSKRIFTINA HÉR.

NÁNARI UPPLÝSINGAR

BP 02 RENDUR PEYSA

Ein af átta uppskriftunum fyrir barnaföt sem einrúm gaf út í bókinni RENDUR vorið 2017 er BP 02 RENDUR PEYSA. Bókin RENDUR er fáanleg á þremur tungumálum ensku, dönsku og íslensku. HÉR getur þú keypt bókina.

AÐFERÐ

Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður, hálsmál og axlastykki eru prjónuð á röngu, peysunni er snúið við og bolur og ermar eru prjónuð á réttu. Útaukning er jöfn yfir axlastykkið og sléttar og brugðnar lykkjur mynda mynstur. Í hálsmáli, fremst á ermum og neðst á bol er prjónað stroff. Athugið að fitja laust upp til að hálsmál verði ekki of þröngt.

STÆRÐIR: 1 (3) 6 (9) 12 ára

Hálf yfirvídd: 24 (29) 34 (40) 44 cm
Sídd frá handvegi: 24 (28) 32 (36) 40 cm
Ermalengd: 25 (29) 34 (38) 42 cm

BAND

Allar einrúm E-tegundir

Einlit peysa:
Stærðir: 1 (3) 6 (9) 12 ára
100 (150) 150 (200) 250 g

Peysa í Þremur litum:
Stærðir: 1 (3) 6 (9) 12 ára
Litur 1: 50 (50) 50 (100) 100 g
Litur 2: 50 (50) 50 (50) 100 g
Litur 3: 50 (50) 50 (50) 50 g

Það er tilvalið að prjóna RENDUR peysuna úr einrúm afgöngum. Vigtaðu hina ýmsu garnafganga fyrir þá stærð sem þú ætlar að prjóna á eldhúsvigtinni þinni. Settu bandið í verkefnapoka til að aðskilja það frá öðru bandi og njóttu sköpunargleðinnar.

PRJÓNAR

Hringprjónar nr. 3 og 3,5
Sokkaprjónar nr. 3 og 3,5

PRJÓNFESTA, SLÉTT PRJÓN Á PRJÓN

10 cm = 21 L
10 cm = 26 umf

ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…

  • BP 03 RENDUR JAKKAPEYSA

    950  ISK

  • E+2 1010 ÓLÍVÍN

    1.795  ISK

  • UPPSELT

    E+2 1013 KLÓRÍT

    1.795  ISK

Vantar þig hjálp?

Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com

Örugg viðskipti

einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu

Styðjið við sjálfbærni

Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.

Title

Go to Top