BP 04 RENDUR SKOKKUR
950 ISK
HÖNNUÐUR: BJÖRG PJETURSDÓTTIR
#einrumRENDUR
Það var árið 2007 sem Björg Pjetursdóttir hannaði uppskriftir af barnafötum með það fyrir augum að nýta band afganga. Ég varð hugfangin af þessum handgerðu, litríku flíkum. Árið 2016 varð að veruleika sá draumur minn að gefa út uppskriftir Bjargar fyrir einrúm band. Við unnum að því að útfæra uppskriftirnar fyrir bandið og gefa prjónurum vísbendingu um það hvernig hægt er að nota band afganga sína. Við gáfum út bókina RENDUR í mars 2017. Í bókinni eru átta uppskriftir fyrir börn á aldrinum eins til tólf ára. Bókina er hægt að fá á ensku, dönsku og íslensku HÉR.
AÐFERÐ
Skokkurinn er prjónaður í hring ofan frá og niður á röngu. Sléttar og brugðnar lykkjur mynda mynstur. Í háls-máli er prjónað stroff og útaukning er jöfn yfir axlastykkið. Í handvegi er fellt af og fitjað er upp fyrir nýjum lykkjum. Athugið að fitja laust upp til að háls-mál verði ekki of þröngt
BAND
Uppskriftin er hönnuð fyrir allar tegundir af einrúm E bandi. Skoðaðu úrvalið af E bandi HÉR. Það er tilvalið að nota einrúm band afganga í þessa RENDUR peysu.
Kaupa þessa uppskrift á RAVELRY
VELDU TUNGUMÁL TIL AÐ KAUPA UPPSKRIFTINA HÉR.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
BP 04 RENDUR SKOKKUREin af átta uppskriftunum fyrir barnaföt sem einrúm gaf út í bókinni RENDUR vorið 2017 er BP 04 RENDUR SKOKKUR. Bókin RENDUR er fáanleg á þremur tungumálum ensku, dönsku og íslensku. HÉR getur þú keypt bókina. AÐFERÐSkokkurinn er prjónaður í hring ofan frá og niður á röngu. Sléttar og brugðnar lykkjur mynda mynstur. Í háls-máli er prjónað stroff og útaukning er jöfn yfir axlastykkið. Í handvegi er fellt af og fitjað er upp fyrir nýjum lykkjum. Athugið að fitja laust upp til að háls-mál verði ekki of þröngt STÆRÐIR: 1 (3) 6 (9) 12 áraHálf yfirvídd: 28 (32) 40 (40) 48 cm BANDAllar einrúm E-tegundir |
Einlitur skokkur: Stærðir: 1 (3) 6 (9) 12 ára 100 (100) 150 (250) 300 g Skokkur í Þremur litum: Það er tilvalið að prjóna þennan RENDUR skokk úr einrúm afgöngum. Vigtaðu hina ýmsu garnafganga fyrir þá stærð sem þú ætlar að prjóna á eldhúsvigtinni þinni. Settu bandið í verkefnapoka til að aðskilja það frá öðru bandi og njóttu sköpunargleðinnar. PRJÓNARHringprjónar nr. 3 og 3,5 PRJÓNFESTA, SLÉTT PRJÓN Á PRJÓN10 cm = 21 L |
ÞÉR GÆTI EINNIG LÍKAÐ VIÐ…
Vantar þig hjálp?
Eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu okkur línu á support@einrum.com
Örugg viðskipti
einrúm tryggir viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu
Styðjið við sjálfbærni
Þegar þú verslar á þessari vefsíðu stuðlar þú að sjálfbærri framleiðslu á fatnaði.